þriðjudagur, 7. október 2014

Iittala vörur ...

Iittala vörur eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Þær eru stílhreinar og fallegar. Ég hef fengið Alvar Aalto túlípanavasa, tvær litlar skálar og tvö lítil teljós í jóla- og afmælisgjafir. Hér eru myndir af fallegum Iittala vörum. Mér finnst dimmblái og bleiki liturinn æðislegir. Ég myndaði einnig vasann minn, kertastjaka og skálar ... ;)






Ótrúlega falleg hönnun :)




Alvar Aalto vasinn hefur mikið notagildi.








Ég á mjög svipuð glös sem ég keypti hjá Þorsteini Bergmann á Skólavörðustíg fyrir mörgum árum (þau eru blá, græn og gul).




Væri til í að eiga þessa!


Flott að safna þessum! Litadýrð frá Iittala ;)





Ég tók myndir af vasanum mínum og skálum. Minni nammiskálin er spritt-kertastjaki. 
Það er líka sniðugt að geyma skartgripi í skálunum og snyrtivörur í Alvar Aalto vösum (þeim minni).



Engin ummæli:

Skrifa ummæli