Ég fór í bæjarferð í gær með fjölskyldunni og við kíktum meðal annars í tvær dásamlegar búðir, Borð fyrir tvo og Púkó og smart. Ég elska vörurnar í þessum búðum - gamalt og nýtt í bland og svona í skandinavískum stíl. Maðurinn minn kom mér á óvart og keypti styttu handa mér af heilagri Maríu. Hún er ótrúlega flott - það er svona rustic áferð á henni. Við kíktum líka í Mál og menningu að ósk dótturinnar. Á meðan hún skoðaði bækur fletti ég í nýjum jólablöðum. Hver myndi trúa því að jólablöðin væru komin í hillurnar! Við lukum ferðinni á því að setjast inn á Tíu dropa og fengum okkur heitt súkkulaði, pönnukökur með sykri og flatbrauð með hangikjöti. Er hægt að hafa það betra! Það er alltaf jafn notalegt að setjast þar inn. Tíu dropar er eitt af okkar uppáhalds kaffihúsum í miðbænum!
Hér er María komin heim ...
Í búðinni hékk fallegt hálsmen á henni og ég ákvað að finna eitthvað heima í líkingu við það. Mér finnst hálsmenið koma mjög vel út - krossinn kemur frá mömmu og er mjög gamall.
Hér koma fleiri myndir af Maríu-styttum (teknar af netinu) ...
Þessi er ótrúlega falleg.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli