þriðjudagur, 27. desember 2022

Eins og gamaldags jólaævintýri

Jólahátíðin á þessu heimili hefst í byrjun nóvember. Vandaður undirbúningur skiptir miklu máli fyrir fjölskyldumeðlimi. Dökkir hlýir tónar, bókastaflar og flóamarkaðshlutir skapa jólastemninguna. Dásamlega fallegt að mínu mati ...











Pappírsstjörnur, piparkökuhús og pastellitir

Þetta innlit er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Svo heillandi stíll -
blanda af gömlum húsgögnum og fallegu veggfóðri.
Hér er margt fallegt að sjá ...


















Jólakyrrð

Húsmóðirin á þessu heimili er ekkert að stressa sig yfir jólunum. Aðalatriðið er að njóta en ekki þjóta. Hún kaupir gjafir á flóamörkuðum eða gefur heimatilbúnar gjafir. Samkvæmt henni er heimurinn að drukkna í dóti og það er ekki hægt að kaupa hamingju barna. Æðsta óskin er að allir myndu muna að jólin lifa í hjartanu ...




















Rómantískt jólainnlit

Gömul húsgögn og dásamlegar jólaskreytingar setja svip sinn á þetta heimili. Svo  margt fallegt að sjá ...