miðvikudagur, 30. desember 2015

Jólin í efra ...

Að þessu sinni setti ég inn myndir af efri hæðinni hjá okkur. Það er svo notalegt að hafa jólaljós í gluggum, kveikt á kertum og kúra með bók/blað í hönd eða bara vafra um netið og skoða hin og þessi heimilisblogg :)

Heimaskrifstofan. Ég er mjög ánægð með frostrósirnar sem dóttir mín
föndraði í gluggann. Þær koma vel út. Matti reyniviðarkransinn er eftir
SveinBjörgu ...

Hér sést aðstaðan betur. Maðurinn minn keypti bláa hnöttinn nýlega.
Mér finnst hann algjört æði ;)

Gömul jólasveinakerti sem ég held mikið upp á (bara til punts!).


Fjölskylduveggur - með myndum af fólki sem er okkur kært. Mamma átti
stóru myndina til hægri. Mér hefur alltaf þótt hún svo rómantísk og falleg ...



















Þessi hangir á skrifstofuhurðinni en hann kemur úr Jólahúsinu á Akureyri
og var keyptur fyrir nokkrum árum. Hann er eins beggja vegna sem er
kostur.

Við máluðum stigann í haust og ég er í skýjunum með
hann. Einföld skreyting - kerti í krukku. Kemur mjög
vel út - sérstaklega í skammdeginu 


Heimaskrifstofan og herbergi dótturinnar liggja saman ...

Ég laumaðist inn og fékk að taka myndir af herbergi dótturinnar - svo kósý
og fallegt að mínu mati ...

Við keyptum jólasveinana í Blómaval fyrir jólin.
Svo krúttlegir og skemmtilegir (líka hægt að hengja upp á
borða) ...


      Þessa bjó ég til - fann mynd á netinu og festi inn í
      gamlan stálbakka. Ég er mjög skotin í henni.
      Hef einnig búið til aðra minni sem hangir í stofunni (kisumynd) ...


Svefnherbergið okkar. Eplakransinn kemur úr Bauhaus
og var keyptur núna fyrir jólin. Næst ætla ég að hengja
 í hann rauðan borða í stað girnis.

Gömul mynd sem ég keypti hjá ABC fyrir jólin. Ég kolféll fyrir henni!
Ég hengdi hana inn í svefnherbergi ...

Önnur mynd í uppáhaldi - þessi hangir fyrir ofan rúmið okkar.
Hér fyrir neðan sjást svefnherbergisgluggarnir okkar.






































þriðjudagur, 29. desember 2015

Fyrstu jólin okkar ...

á nýjum stað. Við erum búin að hafa það aldeilis gott um jólin og þau eru ekki nærri búin :)
Ég tók nokkrar myndir hér heima og ákvað að setja þær hér inn ...