mánudagur, 29. mars 2021

Skreytt fyrir páskana

Svona lítur páskatréð mitt út í ár. Ég lét einnig nokkrar aðrar myndir fylgja sem ég tók hér heima. Það er alltaf gaman að skreyta fyrir páskana. Við vorum með Stjörnu Indlands í matinn á laugardaginn og höfðum vöfflukaffi í gær á pálmasunnudag ...















Tignarlegar rósir

Ég fékk þennan dásamlega blómvönd frá manninum mínum. Sannkallaður ilmur af rósum hér heima. Ég hef sjaldan séð jafn fallegar rósir og þessar. Þær fengust í blómabúðinni Ísblóm á Háaleitisbrautinni. Svo tignarlegar og flottar ...






laugardagur, 27. mars 2021

Hús í frönskum stíl

Innlitið að þessu sinni kemur frá Colorado. Sjarmerandi stíll og hlýlegur.
Spegillinn er gordjöss. Gaman að sjá metnaðarfulla páskaskreytingu!





































föstudagur, 26. mars 2021

Dásamlegt innlit

Ég rakst á þetta fallega innlit á netinu og mátti til með að setja það hér inn. Stíllinn er svo rómantískur og fallegur. Margar fínar hugmyndir. Flott páskagreinin í könnunni. Ég var einmitt að setja páskatréð mitt upp í dag. Ég set myndir af því inn síðar ...