laugardagur, 30. apríl 2016

Ótrúlegustu hlutir leynast inn í skáp!

Maðurinn minn er búinn að gefa mér afskorin blóm í Iittala vasann minn tvær helgar í röð. Þegar hann bað mig um að gera innkaupalista nefndi hann við mig að skrifa túlípana á listann. Ég sagði honum að það væri vissulega gaman að hafa afskorin blóm alla daga en það væri ekki raunhæft. Þegar Iittala-vasinn er tómur verður hann eitthvað svo „tómlegur"! Ég ákvað að gramsa í skápunum mínum og sjá hvort ég fyndi ekki eitthvað í vasann. Ég fann sittlítið af hverju, þ.e. alls konar gerviblóm sem ég hef sankað að mér í gegnum árin og ákvað að blanda þeim saman og sjá hvort ég gæti sætt mig við þau í vasanum. Og viti menn ... hérna kemur afraksturinn. Þau lífga upp á borðstofuna og eru litrík og flott að mínu mati. Það er svo gaman að breyta til eftir árstíðum. Ég prófaði einnig að setja gamlan kertastjaka sem ég átti hjá græjunum okkar og Hortensíunum mínum. Hann er  hár og flottur og kemur bara mjög vel út ;) Ég er virkilega ánægð með útkomuna ...












fimmtudagur, 28. apríl 2016

Bo Bedre country innlit

Hér kemur innlit frá Bo Bedre. Húsið er í New Zealand og er frá 1928. Flottur stíll og hlýlegur ...








miðvikudagur, 27. apríl 2016

Fallegt vintage heimili

Innlitið hér fyrir neðan kemur frá Isabellas. Gamaldags og fallegur stíll að mínu mati - þ.e. franskur vintage stíll ...












þriðjudagur, 26. apríl 2016

Stylish innlit

Hér kemur flott innlit frá Svíþjóð - einfaldur og sjarmerandi still.
Geggjaður sófi - hann setur punktinn yfir i-ið ...

 





































































(Myndir: sjá Entrance)

mánudagur, 25. apríl 2016

Sumarhús í Danmörku

Húsið hér fyrir neðan er athvarf Charlotte og Arne í fríum. Það er klassískt og stílhreint og hefur fengið að halda uppruna sínum. Stiginn liggur niður að sjó þar sem fjölskyldan getur sólað sig. Sjarmerandi hús og fallegt. Innlitið kemur frá Mad & Bolig ...