Íbúðin hér fyrir neðan er í gömlu húsi frá 1905. Sjarmerandi stíll og hlýlegur sem er blanda af vintage og rustic stíl. Ég væri til í að eiga dádýrshausinn og svarta spegilinn ...
Við skruppum til Edinborgar fyrir stuttu í helgarferð. Þetta er dásamleg borg, falleg, skemmtileg og frekar ódýr. Þar er margt að sjá og stutt í allt. Búðirnar eru fínar og nóg af skemmtilegum kaffihúsum og veitingastöðum. Skotar eru mjög viðkunnanlegir og sýna mikla þjónustulund. Við fórum í Hop on - Hop off túr og gengum upp að Edinborgarkastala. Þvílík fegurð frá þessari kastalahæð - hún er engri lík. Við dvöldum á dásamlegu íbúðarhóteli sem heitir Old Town Chambers og það er á besta stað. Við áttum yndislega dvöl og kærkomið að skreppa í burtu á þessum árstíma. Ég setti inn nokkrar myndir af borginni og hótelinu okkar:)
Ég sá þessar myndir á Klikk.no. Hér má sjá dásamlegt eldhús í cottage stíl (sveitastíl). Eldhúsið var tekið í gegn og er einstaklega sjarmerandi. Gamlir hlutir fá að njóta sín og blái liturinn setur mikinn svip á heildarmyndina ...
Hér kemur innlit frá Hollandi - stílhreint og fallegt. Gluggarnir eru mjög sjarmerandi að mínu mati og myndapúðarnir eru geggjaðir. Með því að hafa alrýmið hvítt fá hlutirnir frekar að njóta sín ...