Húseigandi keypti gamalt hús í rjóðri. Heimilið er hlýlegt og fallegt - nútímalegt og í ljósum litum. Mjög sjarmerandi stíll að mínu mati. Ekki spillir fyrir að úti er allt á kafi í snjó og því notalegt að hjúfra sig upp í sófa með kveikt upp í arninum. Hvað er hægt að hafa það betra!
(Myndir frá Lantliv)
sunnudagur, 20. nóvember 2016
fimmtudagur, 17. nóvember 2016
Rauður er litur ársins 2017
Það er mikið um bláan lit í húsbúnaðarblöðum um þessar mundir. Dimmblái hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Sá litur mun hins vegar víkja fyrir rauðum lit á nýju ári. Rauður hefur nefnilega verið valinn litur ársins 2017 ...
Fyrsti snjórinn
Þá er fyrsti snjórinn kominn og vetur genginn í garð! Þegar líður að jólum kemst maður í jólaskap og þá er gaman að skoða innlit eins og þetta. Hér er notaleg stemming, kveikt upp í arninum og fullt af kertaljósum ...
(Myndir frá Lantliv)
(Myndir frá Lantliv)
Rómantískt í sveitastíl
Hér kemur skemmtilegt innlit frá Mad&Bolig sem er í sveitastíl. Stíllinn er rómantískur og mjög sjarmerandi að mínu mati. Mér finnst myndirnar í stigaganginum dásamlegar ...
þriðjudagur, 15. nóvember 2016
Franskur og ítalskur stíll
Ég fann þessar flottu myndir á Pinterest og ákvað að setja þær inn. Stundum rekst maður á myndir sem er bara nauðsynlegt að deila. Margar flottar hugmyndir ...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


























































