mánudagur, 5. desember 2016

Tími túlipana

Nú er tími túlipana. Maðurinn minn gaf mér svo fallega túlipana um helgina - þeir eru fjólubláir og prýða stofuna um þessar mundir. Ég elska túlipana! Hér má sjá túlipana í vasa en innlitið kemur frá Svíþjóð og birtist á Hus & Hem. Dásamlegir litir og sjarmerandi innlit - forstofan er alveg geggjuð ...












sunnudagur, 4. desember 2016

Danskar jóladúkkur

Ég er mjög hrifin af dönsku jóladúkkunum hér fyrir neðan. Ég hef séð þær í Jólahúsinu fyrir norðan en hef hreinlega ekki tímt að kaupa mér þær - langar að eiga tvær!!! Myndirnar fann ég Pinterest og á sænskri bloggsíðu sem heitir Fållorna. Hún er ein af mínum uppáhalds síðum - þar má sjá ótrúlega fallegar myndir af gömlu uppgerðu húsi í Smálöndunum í Svíþjóð ...






































laugardagur, 3. desember 2016

Dásamlegt jólainnlit

Innlitið kemur frá Kristu Keltanen ljósmyndara. Dásamlegt innlit að mínu mati - algjört augna-konfekt ! Margar flottar hugmyndir að jólaskreytingum sem hægt er að útfæra heima ...
















fimmtudagur, 1. desember 2016

Jólainnlit í Kaupmannahöfn

Innlitið hér fyrir neðan kemur frá IN. Hér er gömlu og nýju blandað saman á skemmtilegan hátt. Royal Copenhagen Blue stellið (með bláa mynstrinu) er æðislegt að mínu mati. Húsið er virðulegt og stíllinn er hlýlegur ...