Loksins, loksins! Langþráður draumur að rætast! Ég eignaðist stóran gæsalampa frá Heico í dag. Mig er búið að langa lengi í hann og óskaði eftir honum í jólagjöf hérna um árið en þá var hann uppseldur og hætt að selja hann. Dóttir mín gaf mér aftur á móti lítinn andarlampa og ég held mikið upp á hann.
Ég fór sem sagt í langan göngutúr í morgun í blíðunni og gekk meðfram sjónum við Sæbrautina. Þegar ég var komin að Hörpunni tímdi ég ekki að snúa við og ákvað að kíkja aðeins í Kolaportið. Gæsin sat svo fallega upplýst á litlum kolli ásamt öðrum fjársjóði og það var ekki aftur snúið! Ég hugsaði með mér - þarna er afmælisgjöfin mín komin! Ég er búin að stilla henni upp á stofugólfinu heima og hún kemur svo vel út. Það er geggjað að sjá lampann við gólfsíðan glugga - hún sést vel bæði að utan sem innan. Lampinn skapar svo notalega stemmingu. Þess má geta að allir lamparnir frá Heico eru framleiddir og handsmíðaðir í Þýskalandi. Hann er gerður úr þykku, mótuðu PVC efni sem er öruggt og hitaþjált ...
sunnudagur, 21. júní 2026
Gæs í hús!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli