Hér að neðan má sjá heimili þekkts sænsks hönnuðar sem heitir Martin Brudnizki. Hann er talinn einn af bestu veitinga- og hótelhönnuðum sinnar kynslóðar. RÚV sýndi þátt í vikunni sem heitir Innlit til innanhússhönnuða (Indrednings Arkitekten) þar sem Brudnizki opnar heimili sitt í sveitahéraði sem tilheyrir London. Húsið er frá 17.öld og nefnist Binderton House. Það sem einkennir stílinn er ensk sveitafantasía með eim af Ítalíu. Mikið er um djarfa liti sem gerir stílinn nútímalegan og elegant. Brudnizki tekur ólíka þætti og blandar þeim saman. Hann þorir að blanda stílum á nýjan hátt. Hann hannar húsgögn og hefur einstakan stíl, fullan af húmor, litum og lúxus. Skemmtilegt er að sjá hvernig hann setur saman rósótt mynstur með röndóttu og geómetrísku eða abstrakt mynstri. Einkenni Brudnizki er líka að skipta blómvendi í marga litla vasa. Lofthæðin spillir ekki fyrir en hún er 3,5 m. Lampaskermarnir, flauelsgardínur með dúskum og púðarnir eru gordjöss. Marmari og speglar með slípuðum köntum eru líka einkenni hans. Borðlampar, vegglampar og ljósakrónur skipta miklu máli að mati Brudnizki en hann vill hafa lýsingu í miðju rýminu og í hverju horni. Svo þarf að hugsa lýsinguna lóðrétt - hafa ljós niðri, í miðjunni og í loftinu. Þannig fæst mjúk birta. Galdurinn er lítil ljóssía (eins og filma í laginu - Halv 85 Filtred) sem hann stingur ofan í lampaskerminn. Fingurbjargarblóm er uppáhaldsblóm Brudnizkis og í svefn-herberginu má sjá veggfóður sem hann hannaði með blómið í huga. Ótrúlega smart að mínu mati.
Ég er vægast sagt dolfallin fyrir hönnun hans. Hann gaf út frábæra bók sem heitir Líf mitt í litum eða My life in Colors. Það er geggjað að sjá hvernig hann leikur sér með liti og mynstur. Ég væri svo til í að eiga rauðu borðstofustólana hans - þeir eru æði. Einn gullmoli að lokum frá Brudnizki: Málið er að vera hugrakkur. Margir eru ekki hugrakkir og þess vegna er svo mikið grátt!
laugardagur, 6. júní 2026
Einstakt og áhugavert heimili
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)















Engin ummæli:
Skrifa ummæli