föstudagur, 23. september 2016

Dásamleg stytta

Ég rakst á flott innlit - ég hreifst af styttunni í gluggakistunni. Mér finnst hún geggjuð. Ég lét innlitið fylgja með í heild sinni. Stíllinn er blandaður og aðlaðandi að mínu mati ...























fimmtudagur, 22. september 2016

Jólin í Ikea 2016

Tíminn flýgur hratt og á þessum fyrsta haustdegi fann ég þessar flottu jólamyndir. Það eru þrír mánuðir til jóla og kannski ekki alveg rétti tíminn til að setja inn jólapóst! Þar sem myndirnar eru svo flottar ákvað ég að pósta þeim. Dimmblár er greinilega liturinn í ár samkvæmt Ikea. Það er ótrúlegt en satt að DIY jól er vinsælast á Pinterest um þessar mundir. Það segir manni að einhverjir þarna úti eru farnir að hugsa til jólanna ;)


































































miðvikudagur, 21. september 2016

Haust í loftinu

Haustið er skollið á og þá er alltaf gaman að skreyta heimilið í haustlitunum. Það er um að gera að krækja sér í reynitrjáagrein eða birkitrjáagrein og setja í vasa eða fallega könnu ...