laugardagur, 17. október 2015

Góður dagur ...

Við áttum notalegan dag heima við. Keyptum köku í tilefni dagsins og elduðum uppáhalds rétt sem er gúllas. Við enduðum kvöldið á því að horfa á mynd saman. Ég fann þessa dásamlegu mynd á netinu - hvað er betra en að sitja við kertaljós og hafa það kósý heima í skammdeginu ...


fimmtudagur, 15. október 2015

Gróft og í rustic-stíl ...

Innlitið að þessu sinni kemur frá Finnlandi. Stíllinn er mjög flottur að mínu mati - svona grófur og í rustic-stíl. Svo margt fallegt ...























































(Myndir: kristakeltanenblog.com - sjá 23.júlí 2015)

miðvikudagur, 14. október 2015

Heima hjá Annacate ...


Ég fann þetta flotta innlit á lovelylife.se. Annacate heldur úti blogginu Another Side Of This Life. Húsið þeirra er frá 1927 og er í Gautaborg. Skemmtilegur stíll og persónulegur ...



















þriðjudagur, 13. október 2015

Geggjað Vakre-innlit ...

Ég fann þetta geggjaða innlit á netinu. Mig minnir að ég hafi sett inn hluta af því áður. Hér fann ég mun fleiri myndir og ákvað því að setja það í póst dagsins. Myndirnar tala sínu máli ...














Ég væri til í að eiga kertastjakann út í glugga - hann er æði ;)


























(Myndir af netinu)